Mér hefur alltaf þótt gaman að teikna en hef samt alltaf verið meiri krotari en teiknari. Áður en ég fór í ITH vissi ég til dæmis ekki hvernig á að teikna eftir gullinsniði, að skyggja einn einasta hlut og hvað þá að sýna fjarvídd. Það var frábært að fá að læra þessa hluti en það sem mér fannst hvað skemmtilegast var að læra að teikna fléttu. Flétta er nefnilega einn af þessum hlutum sem ég hef mikið pælt í hvernig ætti að teikna alveg síðan ég var lítil.
Ég skemmti mér vel og lærði margt í þessum tímum og það er aldrei að vita nema ég taki fleiri teiknitíma í framtíðinni.
-Sigríður Fossb. Th.