Blogg sem nemendur ITH í Tækniskólanum nýta sér til að sýna verk sín og miðla upplýsingum sem tengjast náminu.

Wednesday, May 21, 2014

Fríða Marý




Hér eru lokkarnir sem ég fékk og litirnir sem ég málaði eftir þeim.

Böddi

Í Iðnteikningu 200 áfanganum lærði ég margt um liti, bæði að búa til liti úr frummlitinum í annar stigs og svo þriðja stigs ásamt því að gera greinamun á hinum og þessu tónum - einnig að litir sem annars eru skilgreindir kaldir geta verið hlýrri ef blandaðir öðruvísi.


Við fundum liti sem okkur fannst ljótir og blönduðum þá einnig liti sem okkur fannst flottir. Þá sá maður svörtu á hvítu að sumir litir heilluðu mann bara þegar þeir voru nálægt einhverjum öðrum lit sem poppaði þá upp, en einir og sér gátu þeir verið heldur óheillandi.

Þá var annar sem ég valdi sem 'ljótan' þar sem ég fann hann í blaði alveg upp við annan sterkan lit. Svo einn og sér kom hann bara ágætlega út, þannig hann einhvernveginn varð 'verri' nálægt sterkum fjólubláum en meira heillandi nálægt meira neutral lit sbr.ferskjulitaðan.

Við fórum líka dálítið inn í tískuna - litnir í heitu löndum oft meiri og hlýrri, meira notað neon liti o.s.frv. - en ég gerði einmitt kynninguna mína í kringum neon-litina þar sem þeir heilla mig mikið.

-Björn Berg