Blogg sem nemendur ITH í Tækniskólanum nýta sér til að sýna verk sín og miðla upplýsingum sem tengjast náminu.

Monday, November 11, 2013

Allir vilja heilbrigt, fallegt hár..........


Mikilvægt er að hugsa vel um hárið okkar.....

Til þess þurfum við að



Klippa endana reglulega til að koma í veg fyrir slit, á 8-10 vikna fresti.


Ekki nota of mikið shampoo, vegna þess að það þurrkar upp hárið. Sniðugt er að nota Dry shampoo inn á milli.

Nota olíur, þær styrkja og vernda hárið. Argan olía, kókos olía og Sp Lux olían eru mjög góðar.





Helst ekki túbera hárið, vegna þess að það fer svo illa með hárið.


Greiða hárið vel á hverjum degi, til þess að koma í veg fyrir flækjur. Verið ávallt með góðan hárbursta eða greiðu.


Djúpnæra hárið, gott er að setja djúpnæringu einu sinni í viku.


Nota góða fylgihluti, alls ekki nota teygjur með járni og gúmmíteygjur eru algert NO NO.


Notaðu vörur með sólarvörn, vegna þess að þær viðhalda rakanum í hárinu.


Hvíldu blásarann og sléttujárnið af og til, en þegar þú notar þau skaltu alltaf nota hitavörn.


Skolaðu hárið upp úr köldu eða volgu vatni, það gefur hárinu glans.




- Eygló Dís. 

Hártískan í haust/vetur

Hausttískan og vetrartískan koma með smá breytingar í hári, náttúrulegri tóna, pönkaðar og úfnar greiðslur, glansandi hár og klippingarnar frá milli sídd til stutt.
haust2haust5haust6

Litur:
Litirnir í haust/vetur koma með náttúrulega tóna, fallega rauða tóna sem líta náttúrulegir út með smá boosti. Ljósu litirnir eru alveg frá mjög ljósum englalokkum út í strawberry blond tóna. Ljósu litirni eru mýkri og heldur pastel bleiki liturinn sér ennþá inni. Hann hefur sést á fashion week víða um heim í þessum mánuði.
Brúni liturinn verður meira út í nátturulegan brúnan tón, ekki er mikið um að rauður blær sé í litnum en súkkulaði tónninn verður samt mjög vinsæll. Svarti liturinn er að fá lífið sitt aftur og er það mjög skemmtilegt að vera með flotta klippingu og svart hár í vetur.

Sassoon-Salon-Autumn-Winter-Collection-2013-Constructivist-07images (2)cd18a6990fd26ec1ffdcfefd09af95eb
Klipping: 
Millisíddinn er mjög vinsæl í haust/vetur. Hægt er að leika sér mikið með þá sídd og allir möguleikar opnir við greiðslur, liði og fléttur. Úber dúber síða hárið er varla sjáanlegt í vetur.
Bob klippingin er líka sjóðheit lína í vetur og topparnir bæði síðir og stuttir halda sér líka.
Margir hafa verið að horfa til Michelle Williams sem er með fallega, kvennlega stuttklippt hár og er það að verða sí vinsælla og stelpur eru farnar að þora.


haust3Fashionable-hair-colors-autumn-winter-2013-2014-34haust
Greiðslur:
Pönkið er að detta inn og á nýjan hátt, hár er ekki gert fullkomið heldur leyft því að vera úfið þegar það er sett upp. Pulsu greiðslan kemur sterk inn og hliðar greiðslan einnig. Svo þegar þið setjið hárið ykkar upp þarf það ekki að vera alveg fullkomið. Svo er hin leiðinn, sleikja hárið rennislétt í tagl, láan snúð eða eina hlið t.d og svo hafa pönkið annarstaðar t.d í make up-i eða fataklæðnaði.
Krullur eru gerðar ýktar, ef þú ert með krullur nú þegar eða mikla liði ýktu þá með bylgjujárni eða keilujárni hér og þar og gerðu hárið stærra og meira.
Slétt hár er virkilega slétt í vetur, slétt, slétt og mikill glans, skipt í miðju eða til hliðar.

The perfect curling machine frá Babyliss Pro!



Nú er komin glæný tækni af krullujárni frá Babyliss. Þetta tæki er hannað af hárgreiðslu snillingnum Patrik Cameron og hefur fengið nafnið ” The Perfect Curling Machine”.
Þetta krullu tæki er einfalt í notkun og geta nú allir krullað á sér hárið á fljótan, þæginlegan og flottan hátt.

Krullutækið hefur ýmsar stillingar, bæði hvort þú vilt láta krulluna fara til hægri eða vinstri. Hægt er að láta tækið pípa þegar lokkurinn er tilbúin. Tækið getur gert bylgjur og alveg upp í miklar krullur.
Þetta er virkilega skemmtileg uppfinning og mun hún verða vinsæl jólagjöf í ár.
Hægt verður að nálgast þetta skemmtilega og glænýja tæki á öllum helstu hárgreiðslustofum, Elko og fleiri stöðum.

  • Tækið hentar öllum hártegundum.
  • Hitastillingarnar eru 3 -190-210-230 gráður
  • Vinstri, hægri og auto takki
  • Tækið slekkur á sér sjálft eftir 30 min ef engine hreyfing er á því
  • Auðvelt í notkun og sparneytt tæki


Ný lína frá L'óréal !

L'óréal er nýlega búið að setja fram nýja línu frá sér í hárlitum sem hægt er að nálgast í Hagkaup :)
Franskir dagar litur
Vanalega hefur bara verið hægt að lýsa hárið um tvo tóna með svona "pakkalit", en með þessum nýjungum er hægt að lýsa hárið um sex til átta tóna án þess að nota aflitunarefni! Útkoman á hárinu verður því bæði fallegri og meðferðin á hárinu betri.

Franskir dagar litir 1




Einnig eru í þessari línu svokallaði "Ombre" litir sem eru einungis notaðir til þess að lýsa endana á hárinu.

Sunday, November 10, 2013

Nemendablogg - Sniðug hártrix.


Finnst alltaf svo skemmtilegt að skoða auðveld trix fyrir hár og hárumhirðu.
Langaði að henda þessu hérna inn :)


Þegar þú krullar hárið með krullujárni eða sléttujárni krullaðu það þá frá miðjunni og niður en ekki í endunum. Krullurnar renna síður úr með þessari aðferð.
grid-cell-24007-1383572588-14grid-cell-24007-1383572589-16
Hreinsaðu hárburstana eftir hverja notkun og haltu þeim hreinum
enhanced-buzz-19249-1382466311-4
Svona áttu að krulla hárið með sléttujárni
enhanced-buzz-20378-1382468711-11
Lærðu hvaða hárbursti gerir hvað
enhanced-buzz-22574-1382470907-28
Þú getur litið út fyrir að vera með topp ef þú setur taglið svona í þig
enhanced-buzz-25161-1383230563-10
Notaðu sléttujárn til að búa til fallegan sveip í hárið
grid-cell-5959-1383589004-1grid-cell-5959-1383589005-3
Láttu hárið lýta út fyrir að vera þykkara með því að setja tvöfalt tagl í það.
enhanced-buzz-5378-1383232025-22
Búðu til krullur með hárbandi. Sofðu með það yfir nóttina og þegar þú vaknar um morguninn fjarlægir þú það og Hollywood krullurnar ættu ekki að láta á sér standa
enhanced-buzz-6463-1383243727-4
Breyttu spennunum í klístraðar spennur með hárlakki. Þannig renna þær síður úr sléttu hári.
enhanced-buzz-27760-1383247819-10
Prófaðu þig áfram og notaðu mismunandi tækni til að búa til öðruvísi krullur
enhanced-buzz-30215-1383278545-0
Það er ekkert mál að fá sér boho krullur, notaðu bara þessa tækni.
grid-cell-4971-1383315878-10grid-cell-4971-1383315878-12
Snúðu spennunum rétt. Krullaða hliðin á að snúa niður og sú slétta upp.
enhanced-buzz-9939-1383315589-1
Notaðu litla klemmu til að fá meiri fyllingu í taglið
enhanced-buzz-7580-1383316121-1
Notaðu barnapúður og krullujárn og búðu til fallega hárgreiðslu eins og þessa.
enhanced-buzz-13545-1383316927-1
Leka allar krullur úr hárinu? Notaðu sléttjárn og álpappír til þess að fá krullurnar til að endast.
enhanced-buzz-3435-1383326387-0
Sléttujárnið getur gefið stuttu og líflausu hári fyllingu og líf með því að nota það á þennan hátt
enhanced-buzz-22265-1383328766-2
Fléttaðu hárið í nokkrar fléttur, rúllaðu yfir þær með sléttujárni og þú ert komin með fallegar fléttukrullur.
enhanced-buzz-32062-1383329309-4
Ef þú vilt að hárið sé rennislétt ofan á kollinum settu þá smá hárlakk í lófana á þér áður en þú ferð að vinna með hárið
grid-cell-17688-1383337845-15
Þú getur látið sítt hár virðast styttra með þessu trikki
enhanced-buzz-810-1383329593-13
Ef þú ert með brjálæðislega krullað hár getur þú bundið það upp í hinn svokallaða ananas til þess að vernda krullurnar á meðan þú sefur.
grid-cell-21359-1383403230-8
Útrýmdu úfnu hári með því að úða hárslakki á tannbursta og greiða yfir hárgreiðsluna
enhanced-buzz-21177-1383337742-0
Ef þú ert með rosalega sítt og mikið hár þarftu ekki að þvo þér um hárið á hverjum degi heldur aðeins toppinn.
enhanced-buzz-13008-1383331890-8
Ef hárið á það til að úfna skaltu pressa það með handklæðinu í staðin fyrir að nudda það.
enhanced-buzz-15732-1383337198-17
Önnur leið til að losna við úfið hár, sofðu með húfu
enhanced-buzz-21129-1383337903-5
Til að fá fullkominn snúð í hárið, notaðu þá snúningsspennur í stað þreirra klassísku
grid-cell-29830-1383589264-11



Enjoy :)

 - Eygló Dís. 

Thursday, November 7, 2013

Hvert fór tíminn?

Ég trúi því varla að önnin sé að verða búin, tíminn er svo fljótur að líða.  Ég er mjög ánægð með tímana og mér finnst æðislegt að sjá framfarirnar sem hafa orðið í vetur.  Aldrei hefði mér dottið í hug að ég gæti teiknað andlitsmyndir sem ég væri bara nokkuð sátt með.  Nú eru bara þrjár vikur eftir og stóru andlitsmyndirnar orðnar að veruleika - fyrsta svo til kláruð og ég er spennt að byrja á næstu myndum.  Þessi vetur hefur liðið alltof hratt og ég er spennt að sjá hver verkefni næstu annar verða.