Blogg sem nemendur ITH í Tækniskólanum nýta sér til að sýna verk sín og miðla upplýsingum sem tengjast náminu.

Wednesday, November 20, 2013

Mismunandi aðferðir við skyggingar.

Hér er áhugavert 15 mínútna langt myndband þar sem farið er yfir hvernig má skyggja myndir með mismunandi aðferðum.
http://www.youtube.com/watch?v=IY1t6rwbJyw

Tuesday, November 19, 2013

Fyndnar sjampóauglýsingar..


http://www.youtube.com/watch?v=9Dq2z1DWolw

Hafdís sýndi okkur í bekknum þessa á haust, mér finnst hún allavega fáránlega fyndin! :)

http://www.youtube.com/watch?v=kcBOUwuPNls

-Eva Rut


Monday, November 18, 2013

Greiðsla eftir mig




Ég greiddi dúkkuhausnum set í hann greiðslu og tók síðan ljósmynd , svo breytti ég henni í forriti i iphone þannig hún líkist meira blýantsteikningu , gaman að sjá hvað það er hægt að leika sér með svona myndir  :) . 

3D drawing


Mèr finnst þetta er cool ;)
http://m.youtube.com/watch?v=9Eu11jL6Oo4
Mike 1 önn

Saturday, November 16, 2013

Tveggja handa teikning

Rakst á þetta myndband af aðila teikna með báðum höndum. þetta finnst mér ótrúlega magnað og sérstaklega hversu vel þetta kemur út! Fékk óstjórnanlega löngun til að deila þessu með einhverjum og þá urðuð þið fyrir valinu. Þetta er líka ein af bestu myndum allra tíma sem mannskjan er að teikna karaktera uppúr.. ótrúlega flott !!
http://www.youtube.com/watch?v=EJj1Qqqebh8

ljós og friður,
Elísabet

Friday, November 15, 2013

Krullikrull

Þetta er svo kúúl krullujárn !! Must have it haha

http://www.youtube.com/watch?v=jrLA4tFR3xg

Andlitsmaskar

Það er bæði ódýrt og fljótlegt að búa til sýna eigin andlitsmaska :)

Hér eru nokkrar sniðugar uppskriftir sem ég tók af síðunni hjá Evu Laufey Kjaran matreiðslukonu.

Fyrir feita húð:

  • 1x eggjahvíta - pískra þar til hún verður stíf
  • 5-10 dropar af feskri sítrónu


Blanda þessu vel saman og smyrja svo vel á andlitið og láta liggja í korter. Um að gera að gera þetta 2-3 í viku, þá fer maður að sjá góðan árangur.

Maski fyrir húð með mikið af bólum:

  • Eitt egg
  • Tvær matskeiðar af hreinu jógúrti
  • Smá mjólk
Þessu er blandað vel saman. Smyrjið maskanum vel á andlitið og hálsinn og látið liggja á í 20 mín, skolið síðan af.

Maski til þess að fá mjúka húð:
  • Eitt þroskað avokado
  • Ein matskeið af hunangi
  • Ef þú vilt hafa þetta enn betra þá er gott að setja eins og tvær matskeiðar af hreinu jógúrti
Hafðu þetta á í korter og skolaðu síðan af.

Skrúbb fyrir líkamann:
  • Eitt glas af sjávarsalti
  • Dass af olive olíu
  • Til að fá góða lykt er gott að setja lavender eða jasmín olíu. Má sleppa.
Notið skrúbbinn í sturtunni og skolið vel af.

Súkkulaðimaskinn:
  • Þrjár matskeiðar af kakó-dufti
  • Tvær matskeiðar af hreinu jógúrti
  • Tvær matskeiðar af hunangi
  • Ein matskeið af höfrum
Allt blandað saman þar til þetta verður að þykkum maska. Látið þetta á andlit og háls og látið standa í 20 mín, þvoið síðan vel af með heitu vatni.

Fyrir hárið:
  • Látið olive olíu í þurrt hárið til dæmis áður en þið ætlið í sturtu. Smyrjið vel af olínni í hárið, hárið á alveg að vera semí blautt. Látið standa í allavega klukkutíma. Farið svo í sturtu og þvoið hárið með sjampói.

Það sakar ekki að prófa allavega ;)

-Eva Rut








Skemmtilegt um hár :)

staðreyndir um hár :)

þetta er spess ! hafa aldrei farið í klippingu

Rosa flott teikning af grátandi auga fyrir Iðnteikningu 1 önn :)

  • Hér er rosalega flott teikning af grátandi auga (að mínu mati )
  •  gaman að skoða því ég man í tímunum hvað öllum finnst erfitt að teikna augu hér fær maður hugmyndir :)


http://www.youtube.com/watch?v=WhAQUcLj-Ts

Maturinn býr til betra hár : Smá Tips


harid.jpgSegja má að hægt sé að borða á sig betra hár, því ef þú tekur eftirtaldar fæðutegundir inn í mataræði þitt, getur fæðan leitt til þess að hár þitt glansi meira og verði sterkara og líflegra. Líflegt hár fylgir vel samsettu og næringarríku fæði og þar sem gott fæði er hluti af byggingablokkum líkamans, skilar það okkur yfirleitt betra útliti.
Mataræði þitt hefur bein áhrif á hársvörð og hársekki, sem eru grunnur að góðu hári. Beinir þú sjónum þínum að próteinríkri fæðu, fæðu sem inniheldur beta-karótín, fólat, bíótín og omega-3, áttu eftir að sjá hár þitt breytast. Hafðu samt í huga að það tekur nokkra mánuði fyrir þig að sjá breytingarnar, svo þú þarft að gera þessar fæðutegundir að reglulegum hluta af matræðinu og hafa þolinmæði til að bíða eftir árangrinum.

Linsubaunir
Það er ekki bara próteinið í linsubaunum sem gefur hárinu fallegan gljáa, heldur einnig járnið, sinkið og bíótínið sem í þeim er að finna. Einkum er það bíótín, sem hjálpar frumunum að endurnýja sig, en það kemur í veg fyrir hárlos og þurrt og stökkt hár.
Valhnetur
Þar sem valhnetur innihalda mikið af bíótíni og nauðsynlegum fitusýrum, er gott að nota þær sem millibita ef þú vilt fá líflegt og fallegt hár. Skortur á bíótíni í líkamanum leiðir til hárloss, en sé það í fæðunni styrkir það hár og hárvöxt.
Sætar kartöflurSætar kartöflur eru fullar af beta-karótíni, sem verður að A vítamíni þegar það kemur í líkamann. Sú næring sem frumurnar fá úr sætum kartöflum stuðlar að framleiðslu á olíu í hársverðinum sem leiðir til sterkara og líflegra hárs.
Spínat
Í spínati er mikið af fólati, beta-karótíni og C-vítamíni, sem stuðlar að því að olíurnar í hársverðinum dreifa sér og það örvar hárvöxt.
LaxLax er fullur af omega-3 fitusýrum og því fáum við úr honum þær nauðsynlegu fitusýrur sem líkaminn getur ekki framleitt sjálfur. Þessar omega-3 fitusýrur styrkja vöxt hárleggsins og tryggja líka að olíurnar í hársverðinum þorni ekki. Í laxi er líka mikið prótein, sem telst bæði vera byggingarefni fyrir frumur okkar og hárvöxt.

Guðný Benrhard 

Thursday, November 14, 2013

Vonandi að þið hafið eins gaman af að lesa þettaog ég hafði að skrifa þetta :)

Sæl veriði. Mig langar aðeins að sýna ykkur og segja hvað ég er búin að vera pæla undanfarið í hvað mér finnst vera áberandi núna í hártísku og hvað mér finnst fallegt.
Fyrst langar mig að byrja á áberandi litum, nú í dag er meira farið að sjást skærir litir, eins og bleikur, blár eða grænn. Mér finnst það oft koma rosalega vel út að vera með svona crazy colours í hárinu. Einnig er svo skemmtilegt að sjá hvað ungt fólk þorir að láta verða af því að fá sér svona flott litað hár. Fyrir ekki svo löngu hefðu margir litið manneskjuna með fjólubláa hárið hornauga en í dag er það frekar álitið töff. Mér finnst það allavega.
Svo rakst ég á skemmtilega síðu fyrir ekki svo löngu síðan sem mér finnst gaman að skoða. http://www.harid.is/ þar getiði skoðað allskonar greiðslur og hvernig skal gera þær eða svona einskonar tutorial. Einnig er margt um hárumhirðu og hárvörur. Algjör snilldar síða, sérstaklega þar sem hún er á íslensku. Svo langar mig einnig að vekja athygli á þungum toppum sem fara mörgum andlitslögum mjög vel og mér finnst vera áberandi í dag, ég skelli nokkrum myndum með.
Fyrir ekki svo löngu síðan sá ég myndband sem var verið að kynna þennan snilldar hárbursta sem kallast tangle teezer, í því var sagt að þetta væri kraftaverkabursti sem rífur ekki í hárið og örvar blóðflæði í hársekkjunum. Mín fékk svoddan þráhyggju fyrir þessum bursta og hörð á því að eignast hann. Stuttu seinna var ég komin með einn í hendurnar. Tennurnar á burstanum eru ekki langar svo ég held það tæki ansi langan tíma að greiða í gegnum hárið með honum ef þú ert með þykkt hár. Ég er hins vegar með rosa þunnt og fíngert hár og mér finnst hann algjör snilld, hann rífur ekki neitt í hárið á mér og meiðir þess vegna ekki þegar maður greiðir í gegnum það. Minn var merktur að maður mætti greiða blautt hárið með honum en ég vil helst ekki leggja það í vana vegna þess að það fer illa með hárið af því að hárið er miklu viðkvæmara blautt en þurrt. Hér er slóð að einu myndbandi um tangle teezer : http://www.youtube.com/watch?v=f8uuVDYKs2g



Bold red hair and tattoos blue hair. beautyful

Ljós og friður
 Elísabet Rut


Tuesday, November 12, 2013

Hair tutorial

Mér finnst rosa gaman að skoða svona hair tutorials eða hár leiðbeiningar :) Ég er mest á pinterest og skrifa þá bara í search, hair tutorials og þá koma fullt af flottum hárgreiðslum sem er hægt að fara eftir :) Og svo eru líka myndbönd á pinterest sem hægt er að horfa á og oft léttara að fara eftir líka :)

Hér eru nokkur dæmi af pinterest :)

Hair tutorial

Hair tutorial really pretty I need some one to practice on

Go big or go home: the Big Braided Bun.

Hair tutorial

Hair tutorial

I don't know if I have enough hands to keep all those sections separate, but it sure looks pretty!


-Viktoría Venus



Hæ allir!

Vildi deila með ykkur uppáhalds YouTube rásinni minni - virkilega gaman að horfa á þessi myndbönd.  ;)
http://www.youtube.com/user/markcrilley