Blogg sem nemendur ITH í Tækniskólanum nýta sér til að sýna verk sín og miðla upplýsingum sem tengjast náminu.

Monday, May 5, 2014

Hæ hér ætla ég að sýna ykkur litaverkefnið sem við sýndum í tímanum í dag :)

https://www.youtube.com/watch?v=kQdYxAmG0qk


Bestu kveðjum Guðný Bernhard

Pastel litir

Pastel litir í hári er rosalega mikið í tísku og finnst mér það ekkert smá flott! Hér fyrir neðan ætla ég að setja nokkrar flottar myndum af hári í pastel litum :)

Lovelies, mix MANIC PANIC Mixer/Pastelizer with Cotton Candy Pink to get an ethereal shade like this one. Breathtaking. http://www.manicpanic.biz/store/c/85-Classic-High-Voltage-Cream-Formula-Hair-Color.aspx          I want to dye my hair this color but I don't think I could pull it off...         Pastel Lavender hair ... I'm just gunna keep dreaming.          Shit We Love: Pastel Hair
Rainbow hair - Imgur          Pink pastel hair with a fishtail braid (mermaid hair for sure!)
Hæhæ, hérna koma nokkrar myndir af því sem ég hef verið að gera yfir önnina í iðnteikningu 200.

-Hildur Karen






Polyvore verkefni

Hæhæ :)

Hérna er Polyvore verkefnið mitt. Ég náði ekki að hafa hárlokkinn með inni í verkefninu þannig ég pósta bara mynd af honum ásamt verkefninu :)






Monday, April 28, 2014

Litafræðiverkefnið :)



Hér er litafræði verkefnið mitt, verði ykkur að góðu.
Það má svo einnig finna það hér á youtube :)




- Charlotte Sigrid á Kósini

Sunday, April 27, 2014

Litaskema


Frozen greiðsla....

Ef þið eruð Frozen sjúk eins og ég eða eigið litla frozen prinsessu dætur eða frænkur þá er þetta þá kannski eitthvað fyrir ykkur.


Þetta er klárlega eitthvað sem ég á eftir að skoða fyrir búningapartý eða eitthvað til að gera í Frozen sjúku frænku mína.

Ef þið hafið áhuga þá er hægt að finna nákvæmari leiðbeiningar inn á þessari heimasíðu: http://www.makeupwearables.com/2014/04/frozen-hairstyle-elsas-coronation-updo.html


-Charlotte Sigrid á Kósini

Krúttleg greiðsla í litlar skottur

Hér er eitt stykki hjartakrútt greiðsla sem er allgjört easy stöff að gera og æðislega kjút í litlar dúllur.

Það sem til þarf eru 4-6 tannlæknateygjur, hárbusti /greiða og kannski spreybrúsi með vatni til að gera hárið smá rakt (gleymdist við gerð þessara flétta).




1. Skellið hárinu í Tíkarspena
2. Losið tíkarspenan smá og gerið gat í miðjunni til að tosa taglið(spenann) í gegn.
3. Dragið spenan í gegnum gatið (öfugt), þannig að teygjan endi fyrir ofan.
4. Skiptið spenanum/taglinu í tvennt og tosið festið taglið vel.
 5. Þá ætti þetta að líta út eins og einhverskonar gosbrunnur og ætti að móta fyrir hjarta.
6. Takið báða endana og snúið upp á þá frá hvor öðrum. (Best að snúa ekki of fast... hafa þetta laust)
7. Setjið teygju í miðjuna á hárinu.
8. Voila! Hjarta! (Nú er bara að endurtaka þetta hinummegin)

9. Svo er hægt að flétta endann eins og á þessari mynd, eða krullan, hafa hann slegin... gera snúning...
10. Sátt stúlka með hjartakrútt í hárinu.

11. Svo er líka hægt að sleppa snúningnum og gera bara 2 venjulegar fléttur...
12. Líka hægt að skella í tagl aftan á hnakkan og gera sömu greiðsluna... Kannski fyrir aðeins eldri stelpur :)


-Charlotte Sigrid á Kósini

Wednesday, March 26, 2014

Ég fann hérna leiðbeiningar að flottum hárgreiðslum. Eins og nafnið Lazy Girl Hairstyles gefur að kynna, þá eru þetta tiltölulega auðveldar greiðslur sem ekki taka alltof langan tíma.

Monday, March 17, 2014

Friday, March 14, 2014

flott greiðsla

Er árshátíð, stórafmæli eða önnur veisla framundan þar sem þið langar að flagga nýrri og flottri greiðslu? Þá gæti þessi verið málið fyrir þig. Ef þú  kannt að gera öfuga fastafléttu þá er hún ekkert mál. Ég mæli með því að spreyja vel hárið áður en þú fléttar til að það sé ekki of sleypt og til að koma í veg fyrir að fléttan leki úr.
Í þessa greiðslu þarftu greiðu, teygjur, spennur og hársprey.




Fastafléttu greiðsla

Monday, March 10, 2014

https://www.youtube.com/watch?v=0bF_LpdAfPk

smá innlegg fyrir hárteikningu :)

 

ITH2A2H - vatnsmálning

Ég fann stelpu á youtube sem málar ýmislegt skemmtilegt.
Linkurinn inná síðuna hennar ; http://www.youtube.com/user/marydoodles?feature=watch
Hér er hún t.d. að mála með kaffi ;



Svo finnst mér þessi mynd hjá henni bæði skemmtileg og flott ; 


-Irma Kristrúnardóttir



Rétta greiðslan fyrir þitt andlitsfall!

Eitthvað sem allar konur hafa eflaust hugsað um er hver rétta greiðslan fyrir sitt andlitsfall er. Það er nefnilega þannig að þó að klippingin sé fullkomin og greiðslan vel gerð þá einfaldlega kemur hún ekki vel út ef hún hentar ekki andlitsfallinu.
Hérna getur þú á mjög einfaldan hátt séð hvaða klipping hentar þínu andliti best.


Kringlótt andlit

roundcopy_zps2d335310
Þú vilt ekki draga fram og ýkja kringlótt andlitsfall. Þetta þýðir að ef þú ert með kringlótt andlit þá skaltu forðast stutt krullað hár því það mun bara láta kringlótt andlit virka meira kringlótt. Síð bob klipping klæðir þig vel.


Ferkantað andlit

squarecopy_zps0573c43f
Ef þú ert með ferkantað andlit þá viltu draga athyglina frá hökunni svo þú skalt forðast klippingar sem enda við höku. Styttri eða síðari klippingar henta þér betur og styttur og krullur virka vel. Slétt bob klipping færi þér líka vel.


Sporöskjulaga andlit

ovalcopy_zps888adff0
Sporöskjulaga andliti fer nánast allt vel, en það getur virkað langleitt svo passaðu þig á að búa ekki til mikla hæð ofan á höfuðið. Sítt hár dregur úr sporöskjulaga andliti. Ef þú ert með þykkt eða krullað hár, forðastu þá slétta línu, þú vilt ekki líkjast pýramída….


Hjartalaga andlit

heartcopy_zps6f6043d9
Hjartalaga andlitsfalli fylgir oft oddhvöss haka. Dragðu athyglina að augunum og kinnbeinunum með því að klippa á þig þungan topp, hliðaropp og styttur.


Eitthvað fyrir alla

katrina-kaif-bollywoodshare-4copy_zps41f5deac
Styttur og axlasídd fara hvaða andlitsfalli sem er vel. Fræga fólkið er mjög hrifið af þessari klippingu því hún fer öllum vel.

Friday, January 24, 2014

Eru hárlitir hættulegir?

Rakst á þessa grein og fannst hún áhugaverð

Nýlega sá ég grein sem fjallaði um að hárlitanir væru hættulegar og „Efnaofnæmi er tiltölulega algengt meðal rakara og hárgreiðslufólks enda anda þau efnunum að sér og komast í snertingu við þau daglega“ Hvað er meinað með hættulegir háralitir og „tiltölulega algengt“?. Um 5% þeirra sem lita hárið reglulega fá svo ofnæmi fyrir hárlit og einkennin geta orðið alvarleg. Hvað meinar viðkomandi með „tiltölulega algengt“   ef það eru 5%  þá eru það 95% sem fá það ekki. Á að banna háralit af því að 5% manna þola hann ekki? Danskir læknar hafa einnig bent á að hægt væri að minka þetta hlutfall um 75% ef fólk væri ofnæmisprófað áður en það hefur nám í hárgreiðslu eða litar sig.
„Þekktasti ofnæmisvaldurinn í hárlitum er PPD eða 4-paraphenylenediamine.“PPD
Para-Phenylenediamine (PPD), einnig þekkt sem  paraphenylenediamine, p-phenylenediamine eða 1, 4 diaminobenzene, er lyktarlaust  amín sem margir iðnaðar- og snyrtivöruframleiðendur nota. Þetta efni er notað almennt í  háralit, feldi og dökkan farða. Þá er það einnig notað í prentun og myndaframköllunar blek, gúmmívörur, olíu, bensín og feitis framleiðslu. Það er æskilegt til efnaframleiðslu vegna þess að það hefur lágan eitrunar staðal og mikið hitaþol og heldur jafnvægi. Það er gott í háraliti vegna þess að það framkallar náttúrulegan háralit og upplitast seint við þvott og þurrkun. PPD er í sjálfu sér litlaust efni en framkallast við oxun.
The Centers for Disease Control (CDC) flokkar PPD sem orsök snertiexem og ætti því ekki að setja það beint á húð. Þegar það er notað í háralit þá veldur það mildum áhrifum á húð sérstaklega á enni og við augu ef það kemst í snertingu við húð. Roði verður í húðinni en í flestum tilfellum varir það aðeins meðan oxun á sér stað. Fólk sem vinnur við litun að staðaldri verður fyrir mestum áhrifum og þá sérstaklega í gegnum húð en einnig í gegnum öndun.
PPD sjálft er litlaus vökvi sem eða lítið mólekúl sem flytur litarefni inn í hárið. Það er því ekki PPD sjálft sem er ofnæmisvaldandi heldur þau efni sem það ber inn í húðina.
Henna
Undanfarinn ár hefur borið á misnotkun á því að Henna sé talið það náttúrulegasta og besta fyrir hár. Framleiðendur haf notað orðið Henna til að selja vöru sína og það talin gæða stimpill á umbúðum með stórum stöfum, þrátt fyrir að vera lítið brot af innihaldi. Henna er ekki eins hollt fyrir hár og húð þó náttúrulegt sé.
Hættulegasta efnið sem PPD er blandað við er Henna. Það hefur ekki verið leyft að nota það í Henna tattoos í Bandaríkjunum en er samt nota þar ólöglega. Það veldur langvarandi ofnæmi  og bruna í húðinni sem veldur síðan varanlegum örum. Þá er PPD þykknið oft mun hærra þegar það er blandað við Henna heldur en í öðrum háralitum.
Það sem skiptir mestu máli við háralitun eru þau efni sem PPD ber inn í húð og hár. Verst eru svört litarefni sem eru hvað mest ofnæmisvaldandi. Síðan eru þau efni sem notuð eru vegna þess að þau eru ódýr og fljótvirk, svo sem ammonia, resorcinol og parabens.
PPD er því ekki slæmt í sjálfu sér heldur röng efnasamsetning þeirra efna sem blönduð eru við það. Því hafa framleiðendur hætt eða dregið verulega úr notkun efna sem eru hinn raunverulegi ofnæmisvaldur. Það eru mjög strangar reglur sem gilda um litanir í hinum vestrænaheimi og því er rangt að tala um að hárlitun sé hættuleg. Fólk sem er með ofnæmi fyrir eggi, hnetum, skelfisk  eða öðrum fæðutegundum getur lent í lífshættu ef það passar sig ekki. Það er ekki þar með sagt að þessar fæðutegundir séu hættulegar öðrum.

-Elísabet